Sport

Spilar knattspyrnu með Þór í sumar

Heiðmar Felixson
Heiðmar Felixson

Heiðmar Felixson er ekkert á því að taka sér sumarfrí frá atvinnumennskunni í handboltanum en hann leikur með þýska liðinu Hannover-Burgdorf. Heiðmar er kominn hingað til lands og auk þess að starfa í lögreglunni á Dalvík spilar hann knattspyrnu með Þór í 1. deildinni í sumar.



"Maður hefur fótboltann í sér líka, ég fer þetta á stærðinni og hraðanum. Ég hef nánast aldrei hætt í fótbolta en það eru komin þrjú ár síðan ég var síðast í honum á fullu. Ég hlakka mikið til sumarsins með Þór og líst vel á þetta," sagði Heiðmar, en hann spilaði sinn fyrsta leik á miðvikudaginn þegar Þór vann Tindastól í VISA bikarnum, 6-1. Heiðmar skoraði eitt mark og lagði auk þess upp tvö.



Framtíð hans í handboltanum er öllu óskýrari en lið hans var á barmi gjaldþrots og leit út fyrir að allir leikmenn þyrftu að fara frá liðinu.

"Þetta lítur betur út núna, það eru komnir góðir peningar inn í klúbbinn en við missum reyndar Robertas Pauzuolis, okkar besta mann. Ég veit að ég get verið þarna áfram eins lengi og ég vil en hugurinn er farinn að stefna heim. Ég geri þó fastlega ráð fyrir því að ég klári þetta tímabil og komi síðan heim, enda á ég eitt ár eftir af samningnum. Ætli ég komi þá ekki heim og fari í fótboltann," sagði Heiðmar léttur í bragði en hann staðfesti að hann hefði talað við handknattleiksdeildir sinna gömlu liða, KA og Þórs.



Heiðmar er orðinn víðfrægur fyrir heimasíðu sína Heiðmar.de, sem hefur vakið athygli fyrir léttleika og skemmtilegheit og ber jafnan á góma samkeppni á milli hans og hins dýnamíska Loga Geirssonar, sem heldur uppi heimasíðunni logi-geirsson.de. "Ég er miklu betri en Logi! Neinei, við erum báðir góðir en síðurnar eru ekkert svipaðar," sagði Heiðmar, sem er með þrjá menn í því að uppfæra heimasíðuna, en uppstilltar myndir af honum hafa vakið hvað mesta lukku á síðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×