Viðræður báru ekki ávöxt 21. júlí 2006 06:00 flugumferðarstjóri að störfum Flugmálastjórn segir vaktabreytingarnar hafa verið gerðar eftir sjö ára árangurslausar samningaviðræður við flugumferðarstjóra.
Flugmálastjórn Íslands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem breytingar á vaktakerfi flugumferðarstjóra eru útskýrðar og varðar. Í tilkynningunni kemur fram að viðræður um breytingar á vaktakerfi hafi staðið yfir milli Flugmálastjórnar og Félags íslenskra flugumferðarstjóra frá árinu 1999. Eftir að ljóst var að ekki næðist samkomulag taldi Flugmálastjórn rétt að gera nauðsynlegar breytingar á vaktakerfinu fyrr á þessu ári. Það var gert einkum til að bæta mönnun á álagstímum og nýta betur starfskrafta stofnunarinnar. Til breytinganna kom hinn 16. mars síðastliðinn. Hinn 6. júlí kvað Félagsdómur upp dóm í máli Félags íslenskra flugumferðarstjóra gegn íslenska ríkinu þar sem ágreiningur snerist meðal annars um það hvort Flugmálastjórn hefði verið heimilt að breyta vaktakerfinu án samráðs við flugumferðarstjóra. Ríkið var sýknað af öllum kröfum. Á dögunum sagðist Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ekki ætla að deila við dómarann í þessu máli, dómur Félagsdóms stæði. Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, segir félagsmenn mjög ósátta með meðferð málsins, erfitt sé að sættast þegar annar deiluaðilinn hafi lýst því yfir að hann vilji ekki semja.
Innlent Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira