Innlent

Ekki sjálf­sagt að bóka flug með löngum fyrir­vara

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Formaður Brakkasamtakanna átti flug frá Egilsstöðum en þurfti að breyta því skyndilega.
Formaður Brakkasamtakanna átti flug frá Egilsstöðum en þurfti að breyta því skyndilega. Vísir/Aðsend

Jóhanna Lilja Eiríksdóttir, formaður Brakkasamtakanna, fordæmir fyrirhugaða breytingu á Loftbrúnni. Hún gefur lítið fyrir rök ráðherra um að með skipulagningu sé breytingin betri.

Greint var frá því í gær að ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Í stað þess að hún veiti fjörutíu prósenta afslátt af fargjaldinu verður afslátturinn bundinn við fasta upphæð sem nemur sjö þúsund krónum á hvern fluglegg. Verkefnið var sett á fót árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu.

Jóhanna Lilja fordæmir breytinguna í aðsendri skoðanagrein á Vísi. Hún minnir á að þegar Loftbrúin var tekin upp árið 2020 hafi markmiðið verið skýrt, að jafna aðstöðumun fólks eftir búsetu. Auk þess bendir hún á að á þessum sex árum hafi flugfargjöld hækkað verulega.

„Þessi fyrirhugaða breyting vekur hjá mér áhyggjur, ekki síst þegar horft er til þeirra sem þurfa reglulega að ferðast til höfuðborgarinnar vegna nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu.“

Breytti á síðustu stundu

Í tilkynningunni um breytinguna var haft eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra að með nýja fyrirkomulaginu gæti afslátturinn orðið hærri í prósentum þegar fólk bókar fyrr og tryggir sér hagstæð fargjöld. Jóhanna tekur undir að hægt sé að fá ódýrari fargjöld með góðri skipulagningu en það sé heldur ekki alltaf hægt.

„Í fyrra hafði ég bókað flug frá Egilsstöðum til Reykjavíkur með löngum fyrirvara vegna tveggja sérfræðilæknatíma. Flugfargjaldið var hagstætt og ferðin vel skipulögð. Þegar nær dró kom hins vegar slæm veðurspá og hætta á að flugið félli niður. Til að tryggja að ég kæmist í læknatímana þurfti ég að kaupa nýtt flug degi fyrr, á mun hærra verði,“ segir hún í greininni.

Upprunalega flugið féll niður og fékkst það endurgreitt en upphæðin var langt frá því að standa undir kostnaði við nýjan flugmiða. Hefði hún ekki breytt fluginu hefði hún misst af tveimur tímum hjá læknum og jafnvel þurft að borga fyrir það að komast ekki í þá.

„Þetta er raunveruleiki sem margir íbúar landsbyggðarinnar þekkja. Veður, takmarkað framboð flugsæta og tímasetningar sérfræðiþjónustu ráða því oft hvaða ferðamöguleikar eru í boði. Það er einfaldlega ekki alltaf hægt að skipuleggja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu út frá ódýrasta flugfargjaldinu,“ segir hún.

„Þessi aðstöðumunur verður ekki leystur með því einu að benda fólki á að bóka flug fyrr.“

Komi niður á reglubundnu eftirliti

Jóhanna hefur einnig tekið eftir þessu í starfi sínu fyrir Brakkasamtökin en BRCA-afberar eru í aukinni áhættu á að greinast með ákveðnar tegundir krabbameina og þurfa því að sinna reglubundnu eftirliti.

„Stór hluti þessarar sérhæfðu þjónustu er veittur á höfuðborgarsvæðinu.“

Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiði allt að fjórar ferðir á ári en vert sé að taka fram að þeir sem bera BRCA-genið geti einnig þurft að leita sér annarrar heilbrigðisþjónustu. 

„Einstaklingur sem þarf að ferðast reglulega vegna áhættueftirlits getur því staðið frammi fyrir því að þurfa einnig að greiða fullt verð fyrir aðrar nauðsynlegar læknisferðir.

Við slíkar aðstæður hefur Loftbrúin nýst sem mikilvæg viðbót til að draga úr ferðakostnaði, þótt hún hafi ekki verið sett á laggirnar sérstaklega í þeim tilgangi.“

Það megi ekki skapast þær aðstæður að fólk þurfi að velta því fyrir sér hvort það hafi efni á að mæta í nauðsynlegt eftirlit að mati Jóhönnu. Jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu eigi þá ekki að vera háð búsetu eða fjárhag heldur sjálfsagður hlutur af íslensku heilbrigðiskerfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×