Farið verði eftir tillögunum 27. júlí 2006 07:15 Jóhannes Gunnarsson „
Forsætisráðherra hafnar í raun tillögum sem koma fram í skýrslu formanns nefndar um hátt matvælaverð og ég velti fyrir mér til hvers þessi nefnd var stofnuð,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Forsætisráðherra hefur lýst efasemdum um að skattalækkanir á sælgæti til dæmis myndu skila sér til neytenda og hugsanlega myndi ígildi skattsins renna eitthvert annað. Jóhannes segist ekki geta skilið þessi orð á annan veg en hann meini að mismunurinn renni í vasa framleiðenda, heildsala eða kaupmanna. „Í fyrsta lagi liggur fyrir að þegar virðisaukaskattur var lækkaður í fjórtán prósent á flestöllum matvælum skilaði það sér til neytenda. Í öðru lagi hafa stjórnvöld eftirlitsstofnanir sem geta fylgt því fast eftir að þessar lækkanir skili sér til neytenda.“ Jóhannes segir orð forsætisráðherra um að standa þurfi vörð um landbúnaðarkerfið benda til þess að ekki eigi að hrófla við ofurtollum á innfluttum landbúnaðarvörum. Aðspurður um hvort gagnrýni Neytendasamtakanna sé ótímabær, í ljósi þess hve stutt er frá útkomu skýrslunnar sem er í skoðun hjá ráðuneytinu, segist Jóhannes verða fyrstur til að fagna því ef farið verður eftir tillögunum.
Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprunginn í Suðurnesjabæ Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira