Leiðirnar liggja saman á marga vegu 1. nóvember 2006 16:56 Nick Barton, einn eigenda Stamford Partners Straumur-Burðarás keypti 51 prósents hlut í Stamford Partners í sumar og gerður hefur verið bindandi samningur um kaup á hinum 49 prósentunum sem eftir eru þegar fram líða stundir. Engar áætlanir eru þó uppi um að sameina félögin tvö, enda er Stamford Partners vel þekkt vörumerki í matvæla- og drykkjariðnaðinum.
Síðastliðið sumar tilkynnti Straumur-Burðarás um kaup á 51 prósents hlut í breska fjármálaráðgjafarfyrirtækinu Stamford Partners. Félagið, sem hefur starfsemi í London og Amsterdam, sérhæfir sig sérstaklega í ráðgjöf til evrópskra fyrirtækja í matvæla- og drykkjariðnaði og byggir starfsemi þess á sterkum tengslum við leiðandi fyrirtæki í greininni. Um miðjan október samþykkti breska samkeppniseftirlitið kaupin og er nú ekkert því til fyrirstöðu að félögin geti ráðist saman í verkefni. Leiðir Straums-Burðaráss og Stamford Partners geta legið saman á ýmsa vegu að sögn Nick Bartons, eins eigenda félagsins, sem staddur var hér á landi á dögunum þegar ársfjórðungsuppgjör Straums-Burðaráss var kynnt. "Hefðum við ekki tekið ákvörðun um að sameinast öðrum hefðum við sennilega ekki farið að auka við okkur á erlendri grundu, þar sem áhættan hefði verið of mikil fyrir okkur. Samstarfið við Straum-Burðarás gerir okkur kleift að komast inn á markaði eins og Þýskaland og Pólland, auk Skandinavíu. Þar eru möguleikarnir miklir í matvæla- og drykkjariðnaði, mörg fyrirtæki af minni stærðargráðu sem er einmitt sá markaður sem við höfum verið að einbeita okkur að."Ýmsar dyr gætu opnastStraumur-Burðarás og Stamford stefna í sameiningu á að hafa náð styrkri stöðu innan tveggja til fjögurra ára í Norður-Evrópu. Gera þau ráð fyrir að á þeirri leið verði leitast við að samþætta rekstur fyrirtækjanna eins og hægt er, sem muni koma báðum fyrirtækjum til góða. Milli fyrirtækjanna hefur verið gerður bindandi samningur um að Straumur-Burðarás kaupi hin 49 prósentin sem eftir eru þegar fram líða stundir. Það eru þó engar áætlanir uppi um að sameina félögin tvö, enda er Stamford Partners vel þekkt vörumerki í matvæla- og drykkjariðnaðinum.Tengsl Stamford Partners við leiðandi fyrirtæki í matvæla- og drykkjariðnaði koma til með að opna ýmsar dyr fyrir Straumi-Burðarási ef að líkum lætur. "Í starfi okkar komumst við oft á tíðum í kynni við frumkvöðla, ekki síst fólk sem starfar hjá stærri fyrirtækjum og hefur hug á að kaupa sitt eigið fyrirtæki. Þannig höfum við séð mörg tækifæri sem við höfum hingað til ekki haft möguleika á að nýta á annan hátt en þann að vinna sem ráðgjafar að kaupunum og fá fyrir það þóknun. Stærsta viðskiptatækifærið liggur nefnilega í því að hafa aðgang að fjármagni og hafa möguleikann á því að veita ekki bara ráðgjöf heldur að vinna að samningnum frá a til ö." Þarna kemur Straumur-Burðarás inn í dæmið því í sameiningu munu félögin geta boðið upp á ráðgjöf og fjármögnun á einum stað.Frumkvöðlaandinn mikilvægurBarton segir fleiri stóra fjárfestingarbanka hafa komið til máls við Stamford Partners um kaup á félaginu en Straumur-Burðarás hafi orðið fyrir valinu vegna frumkvöðlaandans sem ríkir innan fyrirtækisins. "Fólkið sem vinnur hjá Straumi-Burðarási hefur frumkvæði, það er tilbúið að ráðast í hlutina og það er sveigjanlegt. Þetta eru þau gildi sem hafa alltaf verið okkur hjá Stamford Partners mikilvæg. Margir stærri fjárfestingarbankar byggja líka á viðskiptamódeli sem virkar ekki fyrir okkur - að gera mjög stóra samninga og sjá um allt sem að honum kemur. Það virkar ekki mjög vel í matar- og drykkjariðnaðinum vegna þess að mjög stórir samningar eru fáir í hlutfalli við þá smærri. Þessi minni fyrirtæki sem við erum að fókusa á krefjast meiri sveigjanleika og frumkvöðlaanda í samningavenjum, vegna þess að oftar en ekki eru það frumkvöðlar sem sitja hinum megin borðsins."
Fréttaskýringar Undir smásjánni Viðskipti Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Fleiri fréttir Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Sjá meira