Efnahagsbrotadeildin skilar greinargerð fyrir 5. desember 28. nóvember 2006 06:15 Jón H.B. Snorrason gengur út úr dómsal ásamt Hjördísi Sigurjónsdóttur, fréttakonu Stöðvar 2. MYND/Vilhelm
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra fékk í gær frest til þriðjudagsins 5. desember til þess að skila skriflegri greinargerð vegna kæru fimm einstaklinga er tengjast Baugsmálinu. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group, Jóhannes Jónsson, Kristín Jóhannesdóttir, Tryggvi Jónsson og Stefán Hilmarsson kærðu meint vanhæfi starfsmanna efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra til héraðsdóms fyrir liðna helgi. Þau ætla ekki að svara spurningum er tengjast rannsókn efnahagsbrotadeildar á ætluðum skattalagabrotum þar til niðurstaða fæst í kærumálinu. Kærendur krefjast þess að rannsóknin verði dæmd ólögmæt og til vara að starfsmenn efnahagsbrotadeildar verði dæmdir vanhæfir til þess að fara með rannsókn málsins. Í kröfunni er meðal annars vitnað til orða sem yfirmenn hjá embætti Ríkislögreglustjóra hafa látið falla í fjölmiðlum síðan rannsókn Baugsmálsins hófst. Jón H.B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, var ekki tilbúinn til þess að veita vilyrði fyrir því að ekki yrðu gefnar út ákærur í skattamálinu áður en niðurstaða fengist í kærumálinu. Eftir stuttan fund lögmanna kærenda og Jóns H.B. náðist samkomulag um frest. Munnlegur málflutningur vegna kærunnar fer fram 6. desember en dómari í málinu er Eggert Óskarsson.
Innlent Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Sjá meira