Eragon berst gegn hinu illa á drekabaki 14. desember 2006 10:30 Eragon og Brom. Sá gamli tekur unglinginn undir sinn verndarvæng og gerir honum grein fyrir þeirri ábyrgð sem hvílir á þeim sem hafa dreka á sínum snærum.
Ævintýramyndin Eragon verður frumsýnd á heimsvísu á föstudaginn og þar með lýkur langri bið aðdáenda bóka Christopher Paolini eftir því að sjá hetjuna Eragon og drekann Saphiru lifna við á hvíta tjaldinu. Óhætt er að segja að hér sé á ferðinni sígilt ævintýri og grunnstef sögunnar eru gamalkunn. Hér segir frá hinum unga Eragon sem verður óvænt eina von íbúa landsins Alagaesia um frið og farsæld eftir að hann finnur drekaegg og binst í framhaldinu drekanum Saphiru tryggðarböndum. Á árum áður héldu drekariddarar uppi lögum og lofum í landinu en það breyttist sviplega þegar einn úr þeirra röðum, Galbatorix, ákvað að útrýma félögum sínum og sölsa öll völd undir sig. Áður en Galbatorix komst til valda færðu drekarnir riddurum sínum ofurkrafta og gerðu þá jafnvel ódauðlega. Þeir voru sem sagt ósigrandi og nú bíður það Eragons og Saphiru að bjóða hinum illa einvaldi birginn og hefja reglu drekariddaranna aftur til vegs og virðingar. Eragon nýtur leiðsagnar gamals drekariddara, Broms, sem tekur að sér að leiðbeina unga manninum þegar hann eygir nýja von. Nýliðinn Ed Speleers leikur Eragon en hann er umkringdur þungavigtarfólki í öðrum aðalhlutverkum. Jeremy Irons leikur Brom, John Malkovic fer með hlutverk hins illa Galbatorix og Robert Carlyle bregður sér í líki hins öfluga seiðskratta Durza. Breska leikkonan Rachel Weisz ljær svo tölvuteiknaða drekanum Saphiru rödd sína.
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira