Bíó og sjónvarp

„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Dóri í kokkálsstólnum meðan Steindi kúrir hjá ókunnugum manni.
Dóri í kokkálsstólnum meðan Steindi kúrir hjá ókunnugum manni. Sýn

Mosfellingarnir Steindi Jr. og Dóri DNA snúa aftur með aðra seríu af ferðaþáttunum 1 stjörnu á Sýn+ í nóvember. Þar heimsækja félagarnir sex nýjar borgir og kynnast því hallærislegasta, skrýtnasta og slappasta sem þær hafa upp á að bjóða.

Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu og gististöðum. Nú hafa þeir endurtekið leikinn og er afraksturinn sería tvö sem verður frumsýnd í nóvember á Sýn+ og verður sýnd á föstudagskvöldum.

„Ég og Dóri DNA ferðuðumst til sex nýrra borga og vorum í rauninni bara að skoða slappa og furðulega hluti,“ segir Steindi um nýju þáttaröðina.

„Það er rosalega gaman að fara með Dóra í þessar ferðir því hann er mikill lúxusmaður. Hann elskar að fá sér gott að borða, drekka gott náttúruvín, reykja stóra vindla og njóta. Það er alveg einstaklega gaman að fara með honum í þetta því við gerum ekkert af þessum hlutum í þáttunum,“ segir hann.

Raunar segir Steindi að þegar hann tjáði Dóra að það væri áhugi á því að gera nýja seríu hafi Dóri sagt orðrétt: „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“. Viðbrögðin hafi verið svo góð að þeir endurléku símtalið fyrir þættina.

Meðal þess sem þeir félagar gerðu í nýju þáttaröðinni var að gista hjá sirkúsfólki í Brussel, fara í hafmeyjunámskeið í Orlandó, sofa í mygluðum húsbíl og fara í rottutúr í New York.


Tengdar fréttir

Bölvað ves að ganga blindur um Berlín

Í síðasta þætti af 1 Stjarna á Stöð 2 fór þeir Dóri og Steindi til Berlínar til að njóta alls þess versta sem borgin hefur upp á að bjóða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.