Innlent

Hlé eftir 38 tíma umræðu

Annarri umræðu um frumvarp menntamálaráðherra um að Ríkisútvarpinu verði breytt í hlutafélag lauk um kvöldmatarleytið í gærkvöldi.

Önnur umræða um málið hafði þá staðið samfellt í 29 klukkustundir og fimmtán mínútum betur. Samtals hefur verið rætt um frumvarpið í rúmlega hálfan annan sólarhring á Alþingi ef fyrsta umræða er talin með.

Frumvarpið fer nú til áframhaldandi umfjöllunar í menntamálanefnd og kemur þá væntanlega í ljós fyrir upphaf þriðju og síðustu umræðu um frumvarpið hvort einhverjar breytingar verði gerðar á því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×