Sport

Metfjöldi fylgdist með opinni æfingu Þjóðverja

AFP

Það vantaði lítið upp á stemminguna í Dusseldorf í dag þegar þýska landsliðið hélt opna æfingu undir lokuðu þaki vallarins glæsilega þar í borg. Hvorki meira né minna en 42.000 áhorfendur mynduðu þar frábæra stemmingu og áttu leikmenn þýska liðsins vart orð yfir móttökunum sem þeir fengu.

"Við áttum alls ekki von á öðru eins fári og þessu. Það er frábært að sjá að fólkið er komið í HM-gírinn og við viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að launa fólkinu stuðninginn með því að standa okkur vel," sagði Jurgen Klinsmann og Michael Ballack fyrirliði liðsins tók í sama streng.

"Þetta var hreint ótrúleg stemming og mjög hvetjandi fyrir okkur. Þetta var sannarlega eitthvað sem maður upplifir bara einu sinni," sagði Ballack.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×