Innlent

Gistinóttum fjölgar um fjögur prósent milli ára

MYND/Vilhelm

Gistinóttum fjölgaði um fjögur prósent í apríl síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi, eða um fjórðung, en þeim fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem þeim fækkaði um 13,5 prósent. Fram kemur á vef Hagstofunnar að fjölgun gistinátta í apríl megi að öllu leyti rekja til útlendinga. Þeim fjölgaði um níu prósent en gistinóttum Íslendinga fækkaði um sjö prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×