Innlent

Þurfa að endurskoða frístundabyggð við Úlfljótsvatn

MYND/GVA

Orkuveita Reykjavíkur og fasteignafélagið Klasi þurfa að endurskoða hugmyndir sínar um frístundabyggð við Úlfljótsvatn vegna óskar borgarstjórnar Reykjavíkur þar um. Endurskoðunin hefst þó væntanlega ekki fyrr en ný stjórn Orkuveitunnar hefur verið kosin.

Orkuveitan og Klasi stofnuðu í fyrra fyrirtækið Úlfljótsvatn frítímabyggð sem ætlað var að undirbúa sumarhúsabyggð og tengda afþreyingu og í framhaldinu selja almenningi um 600 lóðir undir sumarbústaði.

Hins vegar heyrðust fljótlega efasemdarraddir um áformin, meðal annars hjá skátum, Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og umhverfissamtökum. Bentu þessir aðilar á að framkvæmdirnar stefni skógrækt skáta í voða auk þess sem þær hafi áhrif á náttúru, þar á meðal vatnsverndarsvæði Þingvallavatns.

Árni Þór Sigurðusson, borgarfulltrúi vinstri grænna, lagði því í gær fram tillögu á síðasta fundi fráfarandi borgarstjórnar um að Orkuveitan og Klasi endurskoðuðu hugmyndir að skipulagi við Úlfljótsvatn. Tillagan var samþykkt með 14 greiddum atkvæðum í borgarstjórn í gær.

Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir að tillaga borgarstjórnar verði líklega skoðuð á næstu vikum, en þó ekki fyrr en ný stjórn Orkuveitunnar hefur verið kosin þann 21. júní. Hann segist ekki vita í hverju enduskoðunin eigi að felast, bendir á að upphaflega hafi verið gert ráð fyrir 1500 lóðum undir sumarbústaði á svæðinu, sem er 1472 hektarar, en þeim hafi verið fækkað í 600 til að koma til móts við hagsmunaaðila.

Kristján Ólafsson, verkefnisstjóri hjá Klasa, segir viðræður í gangi milli félagsins og fulltrúa skáta og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Fullur vilji sé til að ná sátt í málinu og húsin eigi alls ekki að skerða útivistargildi meðfram Úlfljótsvatni. Klasamenn bíði nú eftir því hvaða hugmyndir Árni Þór Sigurðsson hafi um endurskoðun á skipulagi við Úlfljótsvatn og viðræðum við hagsmunaaðila verði haldið áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×