Sport

42 ár liðin síðan við unnum Svía í alvörulandsleik

Ólafur Stefánsson hefur tapað öllum þremur landsleikjunum við Svía á stórmóti.
Ólafur Stefánsson hefur tapað öllum þremur landsleikjunum við Svía á stórmóti.

Íslenska handboltalandsliðið hefur aðeins einu sinni náð að vinna Svía í stórmóti eða undankeppnum þeirra. Hér er verið að tala um Heimsmeistaramót, Evrópumeistaramót og Ólympíuleika. Eini sigurinn kom á HM í Tékkóslóvakíu fyrir 42 árum síðan þegar íslenska liðið vann 12-10 í riðlakeppninni. Íslensku strákarnir hafa nú tapað 9 "alvöruleikjum" í röð fyrir sænska landsliðinu. Íslenska landsliðið mætir Svíum í Globen í fyrri leik liðanna í undankeppni HM 2007 klukkan 15.00 í dag.

Sigurinn á Svíum á HM 1964 dugði þó ekki íslenska liðinu til þess að komast upp úr sínum riðli því 9 marka tap fyrir Ungverjum í lokaleiknum þýddi að Svíar komust upp úr riðlinum ásamt Ungverjum. Öll liðin unnu tvo leiki en markatala íslenska liðsins var slökust. Svíar enduðu síðan í 2. sæti eftir 25-22 tap fyrir Rúmeníu í úrslitaleik en Ungverjar unnu ekki leik og urðu áttundu eftir 23-14 tap fyrir Dönum í leiknum um 7. sætið.

Leikir gegn Svíum í stórmótum eða undankeppnum þeirra:

HM 1961 Í Vestur-Þýskalandi

7.3.1961 Essen Svíþjóð-Ísland 18-10

HM 1964 í Tékkóslóvakíu

7.3.1964 Bratislava Ísland-Svíþjóð 12-10



HM-b 1981 í Frakklandi

24.2.1981 Grenoble Svíþjóð-Ísland 16-15



ÓL 1984 í Los Angeles

10.8.1984 Fullerton Svíþjóð-Ísland 26-24



HM 1986 í Sviss

5.3.1986 Bern Svíþjóð-Ísland 27-23



ÓL 1988 í Seoul

24.9.1988 Suwon Svíþjóð-Ísland 20-14



ÓL 1992 í Barcelona

4.8.1992 Granollers Svíþjóð-Ísland 25-18



HM 1993 í Svíþjóð

9.3.1993 Gautaborg Svíþjóð-Ísland 21-16



EM 2000 í Króatíu

21.1.2000 Rijeka Svíjþóð-Ísland 31-23



HM 2001 í Frakklandi

23.1.2001 Montpellier Svíþjóð-Ísland 24-21



EM 2002 í Svíþjóð

2.2.2002 Stokkhólmur Svíþjóð-Ísland 33-22

Samantekt:

Leikir:
11

Íslenskir sigrar: 1

Jafntefli: 0

Sænskir sigrar: 10

Mörk Íslands: 198 (18,0 í leik)

Mörk Svíþjóðar: 22,8 (251)

Nettó: 53 (4,8 í leik)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×