Innlent

Drífa Snædal ráðin framkvæmdastýra VG

MYND/Vilhelm

Drífa Snædal hefur verið ráðin framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Hún tekur til starfa hjá flokknum í haust en þá lætur Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri - grænna í borgarstjórn, af störfum sem framkvæmdastýra.

Drífa er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og hefur starfað sem fræðslu- og framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf síðastliðin ár. Hún hefur setið í stjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs frá stofnun og hefur gegnt stöðu ritara flokksins frá 2003.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×