Sport

Skagamenn úr leik þrátt fyrir sigur

Bjarni Guðjónsson tryggði Skagamönnum sigurinn í kvöld
Bjarni Guðjónsson tryggði Skagamönnum sigurinn í kvöld

Skagamenn eru úr leik í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu þrátt fyrir 2-1 sigur á danska liðinu Randers á heimavelli sínum á Skipaskaga í kvöld. Hjörtur Hjartarson kom ÍA yfir í fyrri hálfleik, en Danirnir jöfnuðu skömmu síðar. Það var svo Bjarni Guðjónsson sem tryggði ÍA sigurinn með marki úr víti þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Leikurinn í kvöld var ekki sérlega mikið fyrir augað og eru Danirnir komnir áfram í næstu umferð eftir 1-0 sigur á heimavelli sínum í fyrri umferðinni. Hafþóri Ægi Vilhjálmssyni var vikið af leikvelli skömmu eftir að Bjarni skoraði sigurmark ÍA, þegar hann fékk sitt annað gula spjald í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×