Skortur á leiðsögumönnum 4. ágúst 2006 19:30
Skólastjóri Ferðamálaskóla Íslands vill að ríkið veiti auknum fjármunum í ferðaþjónustuna. Mikill skortur er orðinn á leiðsögumönnum hér á landi sem búa yfir ákveðinni tungumálakunnáttu. Eins og kunnugt er er fjöldi þeirra ferðamanna sem heimsækir Ísland ár hvert sífellt að aukast. Líklega er vandfundinn sá ferðamaður sem ekki vill leiðsögn og fræðslu um það sem fyrir augu ber í ferðum sínum um landið og því þýðir aukinn ferðamannafjöldi aukin eftirspurn eftir leiðsögumönnum. Friðjón Sæmundsson, skólastjóri Ferðamannaskóla Íslands, segir nú svo komið að skortur sé á leiðsögumönnum sem tali spænsku, ítölsku, hollensku og rússnesku - og jafnvel litháísku og eistnesku. Aðspurður segir hann þetta eiginlega orðið "ástand". Kristófer Már Kristinsson, leiðsögumaður og kennari við Ferðamálaskóla Íslands, segir í grein í Morgunblaðinu í vikunni tímabært að íhuga þann kost að setja á ítölu ferðamanna til landsins. Friðjón er ekki sammála því. Hann segir að ríkið eigi frekar að veita auknum fjármunum til ferðamannaþjónustunnar því fólk sé að fá tekjur af ferðamönnunum. Til að mynda ætti að vinna að því að bæta aðgengi að helstu ferðamannastöðunum í stað þess að takmarka fjölda þeirra.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira