Sport

Markalaust í hálfleik á Laugardalsvelli

Nú hefur verið flautað til hálfleiks í vináttuleik Íslendinga og Spánverja í knattspyrnu sem fram fer á Laugardalsvelli, en enn hefur ekkert mark verið skorað í leiknum. Spánverjar tefla fram sókndjörfu liði í dag, en íslenska liðinu hefur tekist með ágætum að halda aftur af þeim það sem af er.

Jóhannes Karl Guðjónsson hefur í tvígang látið reyna á færni Jose Reina, markvarðar spænska liðsins og Liverpool, en hefur ekki haft heppnina með sér. Þá átti Hannes Þ. Sigurðsson ágætt færi undir lok hálfleiksins eftir snarpa sókn íslenska liðsins, en enn og aftur var það Reina sem var á réttum stað. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×