Brenton og Helena best hjá KKÍ 28. desember 2006 14:12
Brenton Birmingham hjá Njarðvík og Helena Sverrisdóttir hafa verið valin körfuboltamaður og körfuboltakona ársins 2006, en þetta var tilkynnt í morgun. Það er stjórn Körfuknattleikssambandsins sem stendur að valinu. Á heimasíðu KKÍ segir að Brenton Birmingham hafi leikið mjög vel á árinu 2006. Hann var einn af betri leikmönnum Njarðvíkur sem urðu Íslandsmeistarar síðastliðið vor og var talinn besti leikmaður úrslitakeppninnar. Brenton gaf kost á sér í landsliðið sem tók þátt í Evrópukeppninni sl. sumar og haust, lék frábærlega og var talinn langbesti leikmaður íslenska landsliðsins. Brenton hefur einnig verið að leika vel með Njarðvík í fyrri hluta Íslandsmótsins og einnig lék hann mjög vel með sínum mönnum í Evrópukeppni félagsliða. Brenton hefur verið góð fyrirmynd yngri leikmanna innan sem utan vallar. Helena Sverrisdóttir hefur undanfarin ár verið að skipa sér á meðal bestu leikmanna í efstu deild kvenna á Íslandi. Helena hefur verið valin körfuknattleikskona ársins sl. 2 tímabil af leikmönnum og þjálfurum 1. deildar kvenna. Á árinu 2006 urðu Haukar Íslandsmeistarar og Poweradebikarmeistarar. Helena lék lykilhlutverk með U-18 ára landsliði sem og A-landsliði sl. sumar og haust. Að auki lék Helena mjög vel með Haukum í Evrópukeppni félagsliða og er talin með efnilegri leikmönnum í Evrópu. Helena er frábær fyrirmynd fyrir allar ungar stúlkur jafnt utan sem innan vallar.
Innlendar Íslenski körfuboltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Sport Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Sport Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Enski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Fleiri fréttir Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Sjá meira