Heilsa

Gamlar matar­hefðir í kvöldgöngu

Í kvöldgöngu félagsins Matur-saga-menning verða gamlar matarhefðir rifjaðar upp og talað um eggja- og fuglatöku í Hafnabergi.
Í kvöldgöngu félagsins Matur-saga-menning verða gamlar matarhefðir rifjaðar upp og talað um eggja- og fuglatöku í Hafnabergi. MYND/Teitur

Félagið Matur-saga-menning stendur fyrir kvöldgöngu að Hafnabergi á Reykjanesskaga næstkomandi miðvikudagskvöld. Tilgangurinn með ferðinni er að minnast gamalla matarhefða landsmanna. Hafnaberg er staðsett sunnan við Hafnir og var fyrrum nýtt til bæði eggjatöku og fuglatöku. Margar tegundir sjófugla verpa í bjarginu, sem nú iðar af lífi, að því er segir í fréttatilkynningu.

Þátttakendur hittast á bílastæði ofan við bjargið klukkan 19.30 á miðvikudagskvöld. Þaðan er rúmlega hálftíma gangur að bjarginu. Mæla skipuleggjendur með því að þátttakendur hafi meðferðis sjónauka og myndavélar til að virða bjarglífið fyrir sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×