Helen Mirren var drottning Golden Globe 16. janúar 2007 10:14 Helen Mirren fékk tvenn Golden Globe verðlaun fyrir að leika tvær drottningar
Babel hlaut Golden Globe verðlaunin sem besta kvikmyndin í Hollywood í gærkvöldi, en breska leikkonan Helen Mirren stal þó senunni á sextugsaldri með því að hljóta tvenn verðlaun, fyrir að leika tvær Bretlandsdrottningar. Hún hlaut verðlaun fyrir aðalhlutverk í kvikmynd sem Elísabet II Bretadrottning í myndinni The Queen og sem besta leikkona í aðalhlutverki stuttrar þáttaraðar sem Elísabet I á þáttaröðinni Elizabeth I. The Queen fékk einnig handritsverðlaunin og Elizabeth I var valin besta þáttaröðin. Jeremy Irons fékk líka verðlaun sem besti karlleikari í stuttri þáttaröð. Forest Whitaker var valin besti kvikmyndaleikarinn sem Idi Amin einræðisherra í Uganda í myndinni The Last King of Scotland. Sem fyrr segir var Babel valin besta dramatíska kvikmyndin, en söngvamyndin Dreamgirls var valin besta myndin í flokki gaman- og söngvamynda, auk þess að hljóta tvenn verðlaun fyrir aukahlutverk, sem Idol-stjarnan Jennifer Hudson, og Eddie Murphy fengu. Sacha Baron Cohen hlaut verðlaun sem besti leikari í aðalhlutverki í gaman- eða söngvamynd og Meryl Streep kvenverðlaunin fyrir The Devil Wears Prada. Þetta voru sjöttu Golden Globe verðlaun hennar. Hún sagðist í þakkarræðunni halda að hún hefði unnið með hverjum einasta gesti í salnum á löngum ferli. Martin Scorsese var valinn besti leikstjórinn fyrir The Departed. Vonir manna aukast því um að hann hljóti loks langþráðan Óskar fyrir leikstjórn. Warren Beatty hlaut heiðursverðlaun kennd við Cecil B. DeMille Ugly Betty var valin besta gamanþáttaröð í sjónvarpi og America Ferrera, sem leikur í henni, besta gamanleikkona í sjónvarpi. Kyra Sedgwick hlaut Golden Globe fyrir aðalhlutverk í dramatíska sjónvarpsþættinum The Closer og Alec Baldwin fyrir hlutverk sitt í 30 Rock í flokki gamanþátta. Grey's Anatomy var valin besta dramatíska þáttaröðin. Útnefningar til Óskarsverðlauna verða tilkynntar 23. janúar nk. og afhending þeirra fer fram 25. febrúar. LISTI GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA 2007 KVIKMYNDIR Kvikmynd, Drama: "Babel" Leikkona, Drama: Helen Mirren, "The Queen" Leikari, Drama: Forest Whitaker, "The Last King of Scotland" Kvikmynd, Tónlistar- eða gamanmynd: "Dreamgirls" Leikkona, Tónlistar- eða gamanmynd: Meryl Streep, "The Devil Wears Prada" Leikari, Tónlistar- eða gamanmynd: Sacha Baron Cohen, "Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan" Leikkona, aukahlutverk: Jennifer Hudson, "Dreamgirls" Leikari, aukahlutverk: Eddie Murphy, "Dreamgirls" Leikstjóri: Martin Scorsese, "The Departed" Kvikmyndahandrit: Peter Morgan, "The Queen" Erlend kvikmynd: "Letters From Iwo Jima," USA/Japan Tónlist: Alexandre Desplat, "The Painted Veil" Lag: "The Song of the Heart" from "Happy Feet" Teiknimynd: "Cars" SJÓNVARP Þátttaröð, Drama: "Grey's Anatomy," ABC Leikkona, Drama: Kyra Sedgwick, "The Closer" Leikari, Drama: Hugh Laurie, "House" Þáttaröð, Söngva- eða gamanþættir: "Ugly Betty," ABC Leikkona, Söngva- eða gamanþættir: America Ferrera, "Ugly Betty" Leikari, Söngva- eða gamanþættir: Alec Baldwin, "30 Rock" Minni þáttaröð eða sjónvarpskvikmynd: "Elizabeth I," HBO Leikkona, Minni þáttaröð eða sjónvarpskvikmynd: Helen Mirren, "Elizabeth I" Leikari, Minni þáttaröð eða sjónvarpskvikmynd: Bill Nighy, "Gideon's Daughter" Leikkona, aukahlutverk, Þáttaröð, minni þáttaröð eða sjónvarpskvikmynd: Emily Blunt, "Gideon's Daughter" Leikari, aukahlutverk, Þáttaröð, minni þáttaröð eða sjónvarpskvikmynd: Jeremy Irons, "Elizabeth I" Cecil B. DeMille Heiðursverðlaun: Warren Beatty
Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira