Sport

Fín tilþrif á bikarmótinu í fimleikum

Bikarmót fimleikasambands Íslands í hópfimleikum fór fram í Seljaskóla í gær. Þar mátti sjá stórglsæileg tilþrif. Mótið var tvískipt, fimm lið kepptu í kvennaflokki í TeamGym en tvö lið í blönduðum flokki karla og kvenna þar sem keppt er eftir Evrópureglum.

Í þessum  hluta voru veitt verðlaun fyrir samanlagðan árangur. Bikarmeistari í TeamGym kvenna varð lið Gerplu en Bikarmeistarar í blönduðum flokki varð lið Ármannsog Gróttu.

 

Í seinni hlutanum var keppt eftir landsreglum. Í landsreglum geta liðin keppt í einu, tveimur eða þremur áhöldum. Verðlaun voru veitt fyrir einstök áhöld en ekki samanlagðan árangur. Alls  tóku  átta lið þátt í þessum hluta. Bikarmeistari á gólfi varð lið Selfoss og bikarmeistarar á dýnu var lið Ármanns sem varð einnig bikarmeistari á trampolíni. Fjöldi áhorfenda var samankominn í Seljaskóla í gær og skemmti sér konunglega yfir frábærum tilþrifum keppenda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×