Ekkert bendir til þess að Díana hafi verið myrt 5. mars 2007 14:02 Díana prinsessa.
Breskur dómari sem hefur verið falið að rannsaka lát Díönu prinsessu segist vera treg til þess að fresta réttarhöldunum, enda hafi hún ekki séð minnsta vott af sönnunargögnum um að prinsessan hafi verið myrt. Samvkæmt breskum lögum er skylt að dómari úrskurði um dánarorsök ef lát ber ekki að með eðlilegum hætti. Undir það fellur bílslysið sem Díana og vinur hennar Dodi al Fayed fórust í. Faðir Dodis, egypski auðkýfingurinn Mohammed al Fayed, heldur því fram að breska leyniþjónustan hafi myrt þau, að undirlagi bresku konungsfjölskyldunnar. Þriggja ára breskri lögreglurannsókn lauk á síðasta ári og var niðurstaða hennar að bílslysið hafi verið slys og ekkert annað. Niðurstaða franskrar rannsóknar var sú sama. Mohammed al Fayed þótt vinna mikinn sigur í síðustu viku þegar úrskurðað var að kviðdómur skyldi fjalla um málið, en ekki eingöngu dómari, eins og venjan er. Í dag fór lögmaður al Fayeds fram á það við Elísabet Butler-Sloss, dómara, að fresta réttarhöldunum í sex mánuði, meðan hann færi yfir skjöl í málinu, en ætlunin er að þau hefjist í maí. Butler-Sloss kvaðst mjög treg til þess að bíða enn í sex mánuði, af tillitssemi við syni Díönu. Hún sagði ennfremur að hún hefði ekki séð minnsta vott af sönnunargögnum fyrir kenningum al Fayeds. Búist er við að lögfræðingur egyptans krefjist þess að Karl prins og faðir hans hertoginn af Edinborg verði kallaðir sem vitni. Víst má telja að lögfræðingar konungsfjölskyldunnar verði því mjög andvígir.
Erlent Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Lög brotin við framleiðslu „túrbókjúklings“ í Danmörku Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Sjá meira