Þingið í Ekvador gegn forsetanum 5. mars 2007 23:34 Rafael Correa, forseti Ekvador, þykir umdeildur í heimalandi sínu. Hann stjórnar með fulltingi minnihlutastjórnar og því er oft grunnt á því góða á milli þingsins og Correa. MYND/AP
Þingið í Ekvador lagði fram tillögu hjá stjórnarskrárdómstólum landsins til þess að reyna að koma í veg fyrir að Rafael Correa, hinn vinstri sinnaði forseti landsins, geti haldið þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort hann megi halda stjórnarskrárþing og breyta stjórnarskrá landsins. Talið er líklegt að þetta eigi eftir að auka á spennu í landinu en stuðningsmenn Correa hafa verið duglegir við að mótmæla tilburðum þingsins til þess að setja sig upp á móti Correa. Hann er einn af helstu vinum Hugo Chavez, þjóðnýtingarsinnaða forseta Venesúela. Correa breytti tillögunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna á síðustu stundu á þann hátt að sá sem situr yfir stjórnarskrárþinginu geti leyst upp dómstóla og þing landsins. Þingið samþykkti hins vegar aldrei þann hluta tillögunnar og því vill það að stjórnarskrárdómstóllinn ógildi þann hluta tillögunnar. Dómstóllinn gæti hins vegar tekið sér allt að 60 daga til þess að úrskurða í málinu og ef sú verður raunin hefur úrskurðurinn ekkert gildi þar sem atkvæðagreiðslan hefur þegar farið fram. Þetta fullyrða lagasérfræðingar í Ekvador.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Sjá meira