Sjötíu látnir í skjálftanum 6. mars 2007 12:00 Rýma varð byggingar í Malasíu vegna skjáltans, mörg hundruð kílómetra í burtu. MYND/AP
Óttast er að í það minnsta sjötíu manns hafi týnt lífi þegar tveir jarðskjálftar riðu yfir Súmötru í Indónesíu í morgun. Hús hrundu víða til grunna en engra flóðbylgna hefur þó orðið vart. Fyrri skjálftinn reið yfir laust fyrir klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma og var hann af stærðinni 6,3. Upptök skjálftans voru um fimmtíu kílómetra frá borginni Padang á eynni Súmötru. Hans varð greinilega vart í Singapúr og Malasíu, mörg hundruð kílómetra í burtu. Um tveimur klukkustundum síðar reið seinni skjálftinn yfir en stærð hans var nákvæmlega sex stig. Að sögn talsmanns indónesísku ríkisstjórnarinnar fyrr í morgun er talið að í það minnsta sjötíu manns hafi týnt lífi í þessum hamförum. Óttast er að enn fleiri hafi látist því vegir hafa rofnað til bæja á skjálftasvæðunum og þar er jafnframt símasambandslaust. Í Padang og nálægum byggðarlögum virðast mörg hundruð hús hafa hreinlega jafnast við jörðu. Þannig beið hópur barna bana þegar skóli þeirra hrundi til grunna í þorpinu Solok. Sjúkrahús á skjálftasvæðunum eru yfirfull af slösuðu fólki og þar virðist ríkja algert öngþveiti. Mikill ótti greip að vonum um sig á meðal íbúa svæðisins enda er þeim flóðbylgjan mikla á annan dag jóla 2004 enn í fersku minni þegar 130.000 íbúar Súmötru fórust. Engin flóðbylgja virðist hins vegar hafa farið af stað að þessu sinni enda varð skjálftinn undir landi en ekki hafsbotninum.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Lög brotin við framleiðslu „túrbókjúklings“ í Danmörku Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Sjá meira