Mannskæður jarðskjálfti í Indónesíu 6. mars 2007 18:45
Óttast er að í það minnsta sjötíu manns hafi farist í tveimur jarðskjálftum sem riðu yfir Súmötru í Indónesíu í morgun. Engin flóðbylgja myndaðist vegna skjálftanna en miklar skemmdir urðu hins vegar á mannvirkjum. Fyrri skjálftinn reið yfir laust fyrir klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma og var hann af stærðinni 6,3. Upptök skjálftans voru um fimmtíu kílómetra frá borginni Padang á eynni Súmötru. Hans varð greinilega vart í Singapúr og Malasíu, mörg hundruð kílómetra í burtu. Um tveimur klukkustundum síðar reið seinni skjálftinn yfir en stærð hans var nákvæmlega sex stig. Að sögn indónesískra stjórnvalda er talið að í það minnsta sjötíu manns hafi týnt lífi í skjálftunum. Sá fjöldi gæti þó verið enn meiri því vegir hafa rofnað til sumra bæja á skjálftasvæðunum og þar er jafnframt símasambandslaust. Í Padang og nálægum byggðarlögum virðast mörg hundruð hús hafa hreinlega jafnast við jörðu. Sjúkrahús á skjálftasvæðunum eru yfirfull af slösuðu fólki og þar ríkti öngþveiti í dag. Mikill ótti greip að vonum um sig á meðal íbúa svæðisins og voru margir þeirra of skelkaðir til að snúa aftur til síns heima þegar tók að kvölda. Flóðbylgjan mikla á annan dag jóla 2004 er enda öllum enn í fersku minni en þá fórust 130.000 íbúar Súmötru. Engin flóðbylgja fór hins vegar af stað að þessu sinni því skjálftinn varð undir landi en ekki hafsbotninum.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Lög brotin við framleiðslu „túrbókjúklings“ í Danmörku Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Sjá meira