Ótrúlega margir björguðust 7. mars 2007 13:00 Vélin gjöreyðilagðist í slysinu. MYND/AP
22 fórust þegar farþegaþota fórst skömmu eftir lendingu í borginni Yogyakarta í Indónesíu í morgun. Furðu sætir hins vegar að 112 farþegar hafi sloppið lifandi úr slysinu því flugvélin gjöreyðilagðist. Flugvélin var af tegundinni Boeing 737-400 en hún var á leið frá höfuðborginni Djakarta á Jövu til hins forna höfuðstaðar Yogyakarta. Um borð voru 133 farþegar, þar á meðal ástralskir erindrekar og fréttamenn sem voru í fylgdarliði Alexanders Downers utanríkisráðherra Ástralíu, en hann er í opinberri heimsókn í Indónesíu. Eftir mikla ókyrrð á leiðinni skall vélin harkalega til jarðar á flugvellinum og þaut svo út eftir flugbrautinni á mikilli ferð og við enda hennar kviknaði svo í henni. Ástralskur myndatökumaður sem var um borð náði þessu myndum sem sýna farþegana flýja eldhafið og hlaupa út á nálægan hrísgrjónaakur. Í fyrstu fullyrtu stjórnvöld að 48 lík hefðu fundist en síðar var það dregið til baka. Nú er ljóst að 22 fórust og þykir það vel sloppið miðað við hversu illa flak vélarinnar er farið. Auk hefðbundinnar rannsóknar hafa indónesísk yfirvöld þegar fyrirskipað rannsókn á hvort hryðjuverkamenn hefðu grandað vélinni vegna heimsóknar Downers en ástralskir ráðamenn segja ekkert benda til þess. Þeir sem komust lífs af úr slysinu voru fluttir á nærliggjandi sjúkrahús en meiðsli þeirra eru óveruleg.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi slasaðra í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira