Tsvangirai leiddur fyrir rétt blár og marinn 13. mars 2007 11:56
Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve, var leiddur fyrir dómara í morgun ásamt fimmtíu bandamönnum sínum. Allir voru þeir handteknir á sunnudaginn. Töluvert sá á Tsvangirai að sögn vitna sem rennir stoðum undir ásakanir um harðræði lögreglu. Hæstiréttur í Simbabve krafðist þess í morgun að Tsvangirai yrði leiddur fyrir rétt fyrir hádegi ellegar yrði að láta hann og bandamenn hans lausa. Tsvangirai er leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokks Simbabve og hefur verið helsti andstæðingur Roberst Mugabe, forseta landsins. Hann og hópur bandamanna voru handteknir á sunnudaginn. Óeirðalögregla leysti þá upp útifund í höfuðborginni Harare en stjórnvöld höfðu lagt blátt bann við slíkum samkomum. Einn mótmælenda var skotinn til bana. Lögmaður Tsvangirai hefur haldið því fram að lögregla hafi beitt hann ofbeldi í varðhaldi og meinað honum að hitta skjóstæðing sinn, þrátt fyrir dómsúrskurð þar um. Alþjóðasamfélagið hefur fordæmt handtöku Tsvangirais og bandamanna hans. Mótmælin hafi verið friðsamleg og lýðræðisleg. Upplýsingamálaráðherra landsins hins vegar hélt því fram í gær að mótmælendur hefðu ráðist vopnaðir á lögreglumenn og framið skemmdarverk. Robert Mugabe hefur verið forseti Simbabve frá árinu 1980. Hann er 83 ára gamall en sýnir engin merki þess að hann ætli að sleppa taki sínu af stjórn landsins. Óánægja með stjórnarhætti hans hefur magnast en efnahagsástandið í Simbabver er slæmt. Stór hluti þjóðarinnar er atvinnulaus og verðbólga mælist sú hæsta í heimi eða 1700%
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira