Miklar efasemdir um palestinska þjóðstjórn 16. mars 2007 14:25 Frá Jerúsalem.
Nýrri þjóðstjórn Palestínumanna hefur verið tekið með miklum fyrirvara á Vesturlöndum og nokkuð ljóst að ekki verður nein stefnubreyting þar fyrr en í ljós kemur hver verða stefnumál hinnar nýju stjórnar. Lykilatriði er að hún verði við kröfum Miðausturlanda-kvartettsins svokallaða um að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis og hafna ofbeldi. Þjóðstjórnin var stofnuð í kjölfar þess að heimastjórn Palestínumanna var komin í miklar ógöngur eftir að Hamas samtökin náðu þar meirihluta, í kosningum á síðasta ári. Það er á stefnuskrá Hamas að útrýma Ísraelsríki. Það varð til þess að bæði Bandaríkin og Evrópusambandið hættu efnahagsstuðningi við Palestínumenn. Stjórnarmynstrið leiddi einnig til mikilla innbyrðis átaka Palestínumanna og féllu tugir manna í þeim. Myndun þjóðstjórnarinnar er einnig tilraun til þess að setja niður þær deilur. Bæði talsmaður Hvíta hússins í Bandaríkjunum og Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sögðu í dag að beðið yrði eftir því að sjá hvað hin nýja stjórn gerði, áður en ákvörðun yrði tekin um hvernig samskiptum við hana yrði háttað.
Erlent Mest lesið Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Erlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Erlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Fleiri fréttir Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Sjá meira