Dvelja lengur á vígstöðvum Jónas Haraldsson skrifar 12. apríl 2007 07:26 Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. MYND/AP
Bandarískir hermenn í Írak og Afganistan þurfa framvegis að vera 15 mánuði í stað eins árs á vígstöðvunum samkvæmt nýjum reglum sem varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sett. Markmiðið með þessum breytingum er að tryggja að nægur mannskapur verði í löndunum til að takast á við þau erfiðu verkefni sem Bandaríkjaher fæst við. Í báðum löndum stendur yfir hatrömm barátta við uppreisnarmenn. Nýju reglurnar gera jafnfram ráð fyrir að hermenn fái að minnsta kosti eins árs frí frá bardögum þegar þeir snúa heim. Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, viðurkenndi í gær að mikið álag væri á bandaríska hernum vegna aðgerðanna í Írak og Afganistan en stjórnmálaskýrendur segja að með nýju reglunum sé verið að forðast að herinn lendi í vandræðum á næstu árum. Alls eru um 145 þúsund bandarískir hermenn í Írak og ná reglurnar til þeirra og þess hóps sem senda á til Íraks á næstunni. Hingað til hafa bandarísk yfirvöld átt í erfiðleikum við að standa við reglur sínar um dvöl hermanna á vígstöðvum. Gates sagði þetta líka vera til þess að koma á stöðugleika fyrir hermennina sjálfa og fjölskyldur þeirra.
Erlent Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Fleiri fréttir Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Sjá meira