Innflytjendur verða að læra frönsk gildi Óli Tynes skrifar 14. apríl 2007 19:00
Nicolas Sarkozy hefur oftar en einusinni verið gagnrýndur fyrir ummæli sín um innflytjendur í Frakklandi. Það var því hent á lofti þegar hann sagði að innflytjendur yrðu að gera sér grein fyrir að í Frakklandi væri frönsk þjóðarvitund og frönsk gildi. Á kosningafundi í gær sagðist Sarkozy ekki sjá neitt athugavert við þessi ummæli. Hann sagði að ef ekki væri hugsað um franska þjóðarvitund og hún útskýrð fyrir þeim sem vildu verða franskir, væri ekki hægt að búast við því að innflytjendur gætu aðlagast. Sarkozy sagði allt í lagi að innflytjendur kæmu með sína eigin trú og siði, en þeir yrðu að gera sér grein fyrir að í Frakklandi væru gildi sem ekki yrðu gefin eftir. Sarkozy er fyrrverandi innanríkisráðherra Frakklands og setti þá strangar reglur um málsmeðferð ólöglegra innflytjenda, og unglinga. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur Sarkozy gott forskot á aðra frambjóðendur, en þó er gert ráð fyrir að kosið verði tvisvar. Það er gert ef enginn frambjóðandi fær hreinan meirihluta. Fyrri umferð kosninganna verður 22. apríl og hin síðari 6. maí.
Erlent Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Segir brýnt að semja um áframhaldandi fækkun kjarnavopna Starmer gagnrýndur af samflokksmönnum sínum Segist sjá eftir hverri mínútu með Epstein Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Sjá meira