Kennari varaði margsinnis við morðingjanum Óli Tynes skrifar 18. apríl 2007 10:16 Cho Seung-hui MYND/AP
Fyrrverandi kennari við Virginía Tech háskólann segir að hún hafi margsinnis varað skólayfirvöld við Cho Seung-Hui, sem myrti 32 nemendur og kennara við skólann. Hún vakti fyrst athygli á honum árið 2005, en segir að aðvaranir hennar hafi ekki verið teknar alvarlega. Bekkjarbróðir morðingjans segir að skrif hans hafi verið eins og "eitthvað upp úr martröð." Lucinda Roy var deildarforseti við Enskudeild háskólans. Hún segir að prófessor sem kenndi Cho framsetningu í skriftum hafi komið að máli við hana síðla árs 2005 vegna ritgerða sem Cho skilaði inn. Hún segir að sér hafi verið svo brugðið við að lesa það sem hann skrifaði að hún tók hann úr bekknum og setti hann í einkakennslu. "Mér fannst ég ekki geta látið hann vera áfram í bekknum," sagði Roy í viðtali við CNN. Fyrrverandi bekkjarbróðir Chos, Ian MacFarlane segir að það hafi verið skelfilegt að lesa það sem Cho skrifaði. Það hafi verið yfirfullt af blótsyrðum og skelfilegu ofbeldi. Hann segir að um leið og hann heyrði um morðin hafi hann hugsað; "Ég þori að veðja að þetta var Cho." Stjórn háskólans hefur ekki enn brugðist við yfirlýsingum Lucindu Roy.
Erlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira