Danir ætla að banna blæjur Óli Tynes skrifar 3. maí 2007 15:20 Múslimakona í búrka.
Danska ríkisstjórnin vill setja lög sem gera atvinnurekendum kleift að banna múslimakonum að ganga með slæður eða búrka í vinnunni. Kveikjan að þessu er að barnfóstra í Óðinsvéum neitaði að taka af sér slæðuna við gæslu barna. Bæjarstjórnin þar leitaði til stjórnvalda þar sem hún var ekki viss um að hún hefði heimild til þess að úrskurða í málinu. Carina Christensen, fjölskylduráðherra sagði í fyrstu að ráðuneyti hennar myndi ekki skipta sér af málinu. Viðbrögð annarra stjórnarþingmanna voru svo hörð að hún sá sig um hönd. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra sagði til dæmis að búrka klæðnaður ætti ekki heima í barnagæslu eða öðrum umönnunarstörfum. Hann sagði að ríkisstjórnin myndi að sjálfsögðu sjá til þess að sett væru lög sem gerðu bæjarstjórninni í Óðinsvéum kleift að banna blæjur. Allir flokkar á danska þinginu verðast vera þessu sammála. Þannig sagði talsmaður Rauð-grænu samfylkingingarinnar, sem er lengst til vinstri, að þetta snerist ekki um sér meðferð eða trúarbrögð. Það sé mikilvægt í umönnun barna að þau geti séð andlitstjáningu þeirra sem annast um þau.
Erlent Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Sjá meira