Gagnrýna sölu sveitarfélaga í orkufyrirtækjum Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 5. maí 2007 18:58
Andstæðingar sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum á höfuðborgarsvæðinu gagnrýna þá harðlega fyrir sölu á hlut þeirra í orkufyrirtækjum. Mun meira hefði verið hægt að fá fyrir þessa hluti nú. Minnihluti borgarstjórnar var afar ósáttur við ákvörðun sjálfstæðismanna í haust um sölu á ráðandi hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Í fréttum okkar í gær kom fram að verðmæti Landsvirkjunar ætti að vera fjórfalt hærra nú, miðað við verðið sem ríkið fékk fyrir sinn hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi Samfylkingar segir að fyrir ráðandi hlut borgarinnar í Landsvirkjun síðastliði haust hafi að mestu fengist skuldabréf sem ekki sé hægt að selja. Dagur segir að greiningaraðilar hafi sett spurningamerki við verðið sem borgin fékk fyrir Landsvirkjun. „Það má því segja að íbúar í Reykjavík hafi orðið af milljörðum á milljarða ofan." Fyrir rúmu ári seldi Sveitarfélagið Álftanes hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja. Fyrir þann hlut fengust rúmar 27 milljónir. Sigurður Magnússon bæjarstjóri sveitarfélagsins Álftaness segist mjög ósáttur við þá sölu en hann telur bæinn hafa tapað 70 milljónum. Átök voru milli Sjálfstæðismanna sem vildi selja og Á-listans sem ekki vildi selja. Sigurður segir það verð sem fékkst óásættanlegt og hann mun láta kanna hvernig staðið var að matinu.
Innlent Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira