Umferð gekk betur þessa helgi en fyrir viku Gissur Sigurðsson skrifar 2. júlí 2007 13:14
Umferð til höfuðborgarsvæðisins eftir Vesturlandsvegi og Suðurlandsvegi gekk mun betur í gær, en fyrir viku, þegar miklar umferðartafir urðu. Að sögn lögreglu urðu engin slys og engin teljandi óhöpp á þessum aðal umferðaræðum. Umferðin til borgarinnar dreifðist meira í gær en fyrir viku, sem réði úrslitum um að ekki mynduðust langar biðraðir eins og þá. Umferðin var heldur yfir meðallagi venjulegra sumarhelga , en vísbendingar eru um að meðaltalið verði nokkru hærra í sumar en í fyrrasumar. Þrátt fyrir að nokkrir væru stöðvaðir fyrir hraðakstur framan af helginni er á það að líta að löggæsla var óvenju mikil og var hraði meðal annars mældur úr þyrlu. Löggælslumenn, sem Fréttastofan ræddi við í morgun, eru almennt á því að ef haldið verði upp álíka dampi í löggæslunni næstu helgar muni fara að draga úr umferðarlagabrotum. Eina slysið sem vitað er um, varð í Önundarfirði í gærkvöldi þegar jeppi með fjögurra manna fjölskyldu valt 50 metra út af þjóðveginum og gjör eyðilagðist. Fólkið , sem allt var í bílbeltum, slapp nær ómeitt, sem þykir mildi miðað við útreiðina á bílnum.
Innlent Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira