Mugabe ætlar að þjóðnýta fyrirtæki í Zimbabwe Jónas Haraldsson skrifar 24. júlí 2007 09:42 Robert Mugabe, forseti Zimbabwe. MYND/AFP
Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, mun á næstunni kynna nýtt frumvarp um þjóðnýtingu og annað þess efnis að forseti landsins verði ekki kosinn af almenningi heldur þingmönnum. Zimbabwe, sem var áður eitt gjöfulasta land í suðurhluta Afríku, berst nú í bökkum vegna mikils matarskorts og gríðarlegrar verðbólgu. Þjóðnýtingaráætlun Mugabe hefur þegar mætt mótstöðu hjá almenningi en til stendur að þjóðnýta banka og námufyrirtæki. Umbætur Mugabe í landbúnaði misfórust verulega en margir rekja matarskortinn í landinu til þeirra aðgerða. Þá tók hann býli hvítra bænda til ríkisins og dreifði þeim síðan til stuðningsmanna sinna sem vissu mismikið um landbúnað. Þing verður sett í vikunni en það er það síðasta fyrir fyrirhugaðar kosningar í landinu í mars á næsta ári. Búist er við því að þar muni Mugabe kenna Bandaríkjunum og Bretlandi um ástandið í landinu. Hann vill meina að refsiaðgerðir þeirra vegna aðgerða hans í landbúnaði séu að lama landið. Verðbólga í Zimbabwe er nú að nálgast 5.000 prósent og búðir eru nánast tómar. Þá er talið að um þrjú þúsund manns flýji landið á hverjum degi.
Erlent Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira