Íbúar við Thamesá varaðir við flóðum 24. júlí 2007 20:37
Óttast er að enn fleiri hús verði flóðunum í Bretlandi að bráð á morgun, þegar flóðbylgjur berast niðureftir Thamesánni. Spáð er áframhaldandi úrkomu sem myndi enn auka á vatnsflauminn.Íbúar í Reding og neðar við Temsána hafa verið varaðir við því að hjá þeim geti orðið mikil flóð þegar bylgjur berast niðureftir ánni í fyrramálið. Björgunarsveitir eru nú í óða önn við að byggja þar flóðgarða.Mikil áhersla er lögð á að verja orkuver enda hefur rafmagni slegið út á stórum svæðum auk þess sem hundruð þúsunda manna hafa enn ekki hreint vatn í krönum sínum. Hundruð tankbíla streyma nú til flóðasvæðanna með ferskt vatn.Nú er einnig farið að huga að möguleikunum á hættulegri mengun og smitsjúkdómum, því ræsi hvarvetna hafa fyllst og óþverri flotið upp.Þyrlur eru stöðugt á ferðinni auk þess sem bæði fólk og vistir eru fluttar með bátum. Oft eru þeir flutningar innanbæjar.Síðastliðna nótt náði flóðhæðin hámarki í Oxfordskíri án þess að valda teljandi tjóni. Þó þótti vissara að flytja 50 manns af elliheimili við ána Ock. Neðar við ána bíður fólk hinsvegar milli vonar og ótta eftir að flóðbylgjurnar berist til þess.
Erlent Mest lesið Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Innlent Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Innlent Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Erlent Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu Erlent Fleiri fréttir Neitar að segja ef sér þrátt fyrir hávær áköll Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Þrýst á Scholz að víkja fyrir vinsælasta stjórnmálamanni landsins Sprengdu upp leynilega kjarnorkuvopnarannsóknarstöð í Íran Fangelsaðar fyrir að gagnrýna forsetann og klæðaburð Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Trump setur Kennedy í heilbrigðismálin Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu The Onion kaupir InfoWars Vill sýna þinginu hver ræður Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði Repúblikanar með Hvíta húsið og allt þingið undir sinni stjórn „Valdaskiptin munu ganga svo smurt fyrir sig“ Melania Trump afþakkaði boð Jill Biden Stefnir í hreinsanir innan Pentagon Ætlar að hætta áður en Trump rekur hann Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum Hvítrússnesk andófskona skýtur upp kollinum eftir langa þögn Vill verða bæjarstjóri í Þórshöfn eftir kosningasigur Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Sjá meira