Sport

Jakob Jóhann í 33. sæti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob Jóhann Sveinsson.
Jakob Jóhann Sveinsson. Mynd/Stefán

Jakob Jóhann Sveinsson komst ekki í undanúrslit í 50 metra bringusundi á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í Debrecen í Ungverjalandi.

Hann synti á 28,52 sekúndum í morgun og náði 1.-2. sæti í sínum riðli. Hann var þó 0,3 sekúndum frá tveggja ára gömlu Íslandsmeti sínu í greininni.

Hann lenti samtals í 33.-34. sæti í greininni en efstu sextán komust í undanúrslit í greininni.

Jakob Jóhann keppir á morgun í 100 metra fjórsundi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×