Sport

Dagný Linda í 49. sæti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dagný Linda Kristjánsdóttir.
Dagný Linda Kristjánsdóttir. Nordic Photos / Getty Images

Dagný Linda Kristjánsdóttir varð í dag í 49. sæti í risasvigi á heimsbikarmóti í St. Moritz í Sviss.

Af þeim 60 keppendum sem hófu keppni í dag skilaði 51 sér í mark. Dagný Linda kom í mark á 1:18,45 mínútum og var 3,39 sekúndum á eftir Önju Pärson frá Svíþjóð sem bar sigur úr býtum.

Næst tekur Dagný Linda þátt í heimsbikarnum um næstu helgi þegar keppt verður í St. Anton í Austurríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×