Sex sakborningar í Fáskrúðsfjarðarmálinu 21. desember 2007 16:16
Sex manns eru taldir sakborningar í Pólstjörnumálinu á Fáskrúðsfirði sem kom upp í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem hefur lokið rannsókn sinni og sent málið til ríkissaksóknara. Niðurstaða embættisins er sú að rökstuddur grunur sé um stórfelld brot á lögum um ávana- og fíkniefni og almennum hegningarlögum. Bent er á að rannsókn málsins hafi verið umfangsmikil og teygt anga sína víða, þar á meðal til Þýskalands, Hollands, Færeyja, Danmerkur og Noregs. Mánuðum saman stóð yfir rannsókn á hugsanlegum innflutningi á miklu magni af fíkniefnum hingað til lands sem síðar leiddi til handtöku þriggja manna í og við skútu á Fáskrúðsfirði að morgni 20. september síðastliðins. Um fjörtíu kíló af fíkniefnum, amfetamín, e-pillur og efni til e-pillugerðar fundust í skútunni og við húsleit í Færeyjum. Í framhaldinu voru fleiri aðilir handteknir og yfirheyrðir og nú liggur fyrir sú niðurstaða sem áður var nefnd.
Pólstjörnumálið Mest lesið Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Erlent Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Innlent „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Innlent Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Innlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Íslandsvinurinn OG Maco látinn Erlent „Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“ Innlent Enginn læknir á vaktinni Innlent Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Innlent Fleiri fréttir „Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“ Hvað þarf að ræða í Kryddsíldinni? Enginn læknir á vaktinni „Þetta er dæmigert baktjaldamakk“ Flugeldasala Landsbjargar hafin Ósætti með mögulega frestun landsfundar og flugeldasala Hvað vildu Íslendingar vita á árinu? Konan trúverðug en maðurinn sýknaður því brotið er fyrnt Ófært í Ísafjarðardjúpi Undir áhrifum fíkniefna á vinnuvél Sakamálin sem skóku þjóðina Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Sjá meira