Framverðir enska rappsins 3. október 2008 04:00 Þrátt fyrir ágæt tilþrif virðist Mike Skinner eiga í vandræðum með að þróa Streets-konseptið og tónlistina áfram.
Tvær af skærustu stjörnum breska rappsins eru nýbúnar að senda frá sér plötur. Roots Manuva gaf út sína sjöttu plötu, Slime & Reason, í byrjun september og hálfum mánuði seinna sendi Mike Skinner frá sér fjórðu Streets-plötuna Everything Is Borrowed. Trausti Júlíusson lagði við hlustir. Það hefur aldrei farið mjög mikið fyrir bresku rappi. Það virðist að mestu leyti dæmt til að falla í skuggann á því bandaríska sem meiri peningum er dælt í að framleiða og markaðssetja. Ég þreytist samt seint á því að lofsyngja helstu framverði breska rappsins, en þeir hafa gert nokkrar af bestu plötum síðustu ára. Þeirra á meðal má telja bæði hvíta Birmingham-strákinn Mike Skinner sem sló í gegn fyrir sex árum með Original Pirate Material og svarta dub-skáldið og Lundúnabúann Roots Manuva sem hóf glæstan feril árið 1999 með Brand New Second Hand. Þeir voru báðir að senda frá sér nýjar plötur. Mýkri og víðsýnni Mike SkinnerSlime & Reason Roots Manuva klikkar ekki á sinni sjöttu plötu.Mike Skinner hefur lýst því yfir að Everything Is Borrowed sé mýkri og jákvæðari plata heldur en The Hardest Way to Make an Easy Living sem kom út fyrir tveimur árum. Tónlistin kemur öll frá hefðbundnum hljóðfærum sem gefur mýkri og lífrænni hljóm og textarnir eru jákvæðari og opnari. Þeir fjalla um lífið í stærra samhengi en áður. Mike er ekki lengur bara að tala um hversdagslífið í hverfinu. Það eru mörg ágæt lög á plötunni, til dæmis titillagið, The Escapist og Heaven for the Weather og í raun eru engin vond lög á henni, en það vantar samt töluvert upp á að tónlistin sé jafn spennandi og manni fannst hún á fyrstu tveimur Streets-plötunum. Það er enn gaman að Mike Skinner og rímunum hans, en hann virðist samt eiga í erfiðleikum með að þróa sig áfram.Umslagið á Everything Is Borrowed hefur vakið töluverða athygli, en á framhliðinni er ljósmynd af Skógarfossi og inni í plötubæklingnum eru fleiri myndir af villtri og tilkomumikilli náttúru, að minnsta kosti einhverjar þeirra teknar á Íslandi. Myndirnar eru úr myndröð portúgalsk/breska ljósmyndarans Edgar Martins. Þær eru eins og staðfesting á því að Mike Skinner er farinn að horfa upp úr verkamannahverfinu sínu og er byrjaður að skoða heiminn á nýjan hátt. Enn eitt meistaraverkið„We Don't Sell Out/Bout We Sell A Tune Or Two/We Can Buy A Wooden Spoon Or Two," rappar Roots Manuva meðal annars í Again & Again, fyrsta smáskífulaginu af nýju plötunni Slime & Reason. Roots Manuva er listamannsnafn Rodney Smith. Hann hefur aldrei selt jafn mikið af plötum og Mike Skinner þó að hann hafi vakið mikla athygli, sérstaklega í Bretlandi. Roots Manuva er stærsta stjarna Big Dada-útgáfunnar sem er hip-hop armur Ninja Tune.Það er þrennt sem einkennir tónlist Roots Manuva. Í fyrsta lagi er það röddin sem er einstök. Í öðru lagi er tónlistin framsækin og fersk, án þess að vera endilega byltingarkennd. Hljóðheimurinn er alltaf spennandi. Á nýju plötunni mætti kalla hann elektró-skotið dub-fönk. Og í þriðja lagi eru það textarnir sem eru ljóðrænni en hjá mörgum öðrum röppurum, fullir af flottum stílbrögðum og alvöru tjáningu...Slime & Reason er þrusu plata. Ein af plötum ársins. Upphafslagið Again & Again er algjör snilld (prófið að spila það á miklum styrk!) og svo kemur hvert gæðastykkið á fætur öðru.
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Þá var kátt í höllinni Shakira sýknuð Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Nennti ekki að meika það Stjörnufans hjá Birni á Edition Fjarsamband alltaf erfitt Eurovision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla Tónleikum Yasiin Bey frestað með dags fyrirvara fram á haust Sjá meira