Sheeran bað aðdáendur afsökunar Lovísa Arnardóttir skrifar 20. september 2026 11:28 Sheeran lýsti afstöðu sinni og baðst afsökunar í upphafi tónleikanna. Vísir/AP Ed Sheeran bað aðdáendur sína afsökunar á því að hafa gert „mistök“ þegar hann hélt sína fyrstu tónleika eftir að rapparinn Macklemore var rekinn af tónleikaferð hans fyrir að lýsa yfir stuðningi við Palestínu á tónleikum þegar hann hitaði upp fyrir Sheeran.
Sheeran hélt í gær tónleika sína í Philadelphia og hóf þá á því að fjalla um deilurnar sem hafa síðan umkringt tónleikaferðina og orðið til þess að öll upphitunaratriðin hættu. Greint var frá því í vikunni að tónleikahaldari hafi borið ábyrgð á því að Macklemore var rekinn en deilurnar hafa, samkvæmt frétt BBC, orðið til þess að miðasala hefur dregist saman og verðið lækkað. „Ég ætlaði mér aldrei að verða tónlistarmaður sem tæki þátt í baráttu fyrir ákveðnum málstað, en er nú hluti af mikilvægum og tilfinningaþrungnum deilum um tjáningarfrelsi og flóknasta pólitíska ágreiningsmál heimsins,“ sagði Sheeran. Hann lýsti árásunum undir forystu Hamas 7. október 2023 sem „hryllilegum“ og sagði ástandið á Gasa „óréttlætanlegt“. Sheeran sagði áhorfendum að hann væri vanur gagnrýni vegna tónlistar sinnar en „í þessari viku snerist gagnrýnin um eitthvað miklu mikilvægara og ég hef þurft að taka og taka erfiðar ákvarðanir, og ég er að gera mistök, og mér þykir það svo, svo leitt“. Reynt að taka ekki afstöðu Hann sagðist vilja svara spurningum um afstöðu sína til Ísraels og Palestínu. „Ég hef á ferli mínum reynt að vera ekki pólitískur álitsgjafi af neinu tagi, vegna þess að ég vil að tónlist mín og tónleikar snúist um einingu en ekki sundrungu,“ hélt hann áfram. „En þetta er mannúðarmál og ég get ekki lengur falið hvernig mér líður vegna þessa.“ Sheeran sagði að það sem gerðist í Ísrael 7. október hefði verið „hryllilegt og bætt við aldalanga þjáningu gyðinga“ og að það sem væri að gerast á Gasa væri „hörmulegt, óréttlætanlegt og óhóflegt“. „Hjarta mitt hefur brostið vegna umfangs eyðileggingarinnar og þess mannfalls meðal almennra borgara, líf barna,“ sagði hann og að það yrði ekki litið fram hjá kerfisbundnu óréttlæti á Vesturbakkanum. Fjöldi kom saman fyrir utan tónleikastaðinn til að mótmæla.Vísir/AP Hann sagði að hann væri að reyna að finna út hvernig hann gæti lagt sitt af mörkum til að hjálpa. Hann sagði enn alla velkomna á tónleika með sér og að tónleikar hans ættu að vera staður þar sem fólk ætti að geta staðið við hlið annars fólks með ólíkar skoðanir. Áhyggjuefni að tónleikastaðir samþykki efni Sheeran sagði einnig að hann hefði „miklar áhyggjur“ af þeirri hugmynd að tónleikastaðir myndu „samþykkja“ efni eða flytjendur fyrirfram. Þessu fögnuðu áhorfendur með lófataki. Deilurnar hófust í byrjun september þegar Macklemore flutti lag tileinkað mótmælendum sem styðja Palestínu og sagði þjóðarmorð hafa átt sér stað á Gasa. Rapparinn sagði einnig að gagnrýni hans á Ísrael væri ekki ætluð sem gagnrýni á „gyðingabræður mína og systur“. Milljarðamæringurinn Robert Kraft, sem á Gillette-leikvanginn og bandaríska fótboltaliðið New England Patriots, staðfesti síðar að hann hefði bannað Macklemore að koma fram á væntanlegum tónleikum breska söngvarans. Kraft sakaði Macklemore um hatursorðræðu og sagði hann „einungis deila afmörkuðum upplýsingum og hunsa gjörðir Hamas“.
Bandaríkin Bretland Tónlist Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Írland Tengdar fréttir Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Tónlistarmaðurinn Macklemore tilkynnti í gær að hann ætlaði að láta allan ágóða af tónleikaferðalagi sínu með Ed Sheeran, um eina milljón dollara, renna til neyðaraðstoðar á Gasa. Hann skoraði á sama tíma á Robert Kraft, eiganda New England Patriots, sem krafðist þess að hann yrði fjarlægður af tónleikaferðalagi Sherrand, að gefa sömu upphæð til neyðaraðstoðar á Gasa og Vesturbakkanum. 17. september 2026 08:21 Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran hefur tjáð sig eftir að Macklemore var meinað að halda áfram að hita upp á tónleikaferðalagi hans. Hvernig rapparinn miðlaði skilaboðunum sínum hafi skipt sköpum. Annar tónlistarmaður hefur afboðað komu sína sem upphitunaratriði á tónleikaferðalaginu. 15. september 2026 20:20 Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Macklemore segir Ed Sheeran hafa verið beittan þrýstingi af Roberti Kraft og öðrum bandarískum leikvangaeigendum sem varð til þess að Sheeran sparkaði rapparanum af tónleikaferðalagi sínu. Pólitísku hlutleysi Sheerans hefði loksins verið ögrað og hann ekki þorað að velja sér hlið. Þegar kæmi að Palestínu væri hlutleysi afstaða og Sheeran væri þar með að taka afstöðu gegn hinum undirokuðu. 15. september 2026 11:23 Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið Fegurðardrottning drepin eða einhver myrtur á hjólhýsasvæðinu Áskorun Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Sheeran bað aðdáendur afsökunar Tónlist „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Fleiri fréttir Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Highway 61 Revisited fagnar 61 árs afmæli Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Sjá meira
Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Tónlistarmaðurinn Macklemore tilkynnti í gær að hann ætlaði að láta allan ágóða af tónleikaferðalagi sínu með Ed Sheeran, um eina milljón dollara, renna til neyðaraðstoðar á Gasa. Hann skoraði á sama tíma á Robert Kraft, eiganda New England Patriots, sem krafðist þess að hann yrði fjarlægður af tónleikaferðalagi Sherrand, að gefa sömu upphæð til neyðaraðstoðar á Gasa og Vesturbakkanum. 17. september 2026 08:21
Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran hefur tjáð sig eftir að Macklemore var meinað að halda áfram að hita upp á tónleikaferðalagi hans. Hvernig rapparinn miðlaði skilaboðunum sínum hafi skipt sköpum. Annar tónlistarmaður hefur afboðað komu sína sem upphitunaratriði á tónleikaferðalaginu. 15. september 2026 20:20
Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Macklemore segir Ed Sheeran hafa verið beittan þrýstingi af Roberti Kraft og öðrum bandarískum leikvangaeigendum sem varð til þess að Sheeran sparkaði rapparanum af tónleikaferðalagi sínu. Pólitísku hlutleysi Sheerans hefði loksins verið ögrað og hann ekki þorað að velja sér hlið. Þegar kæmi að Palestínu væri hlutleysi afstaða og Sheeran væri þar með að taka afstöðu gegn hinum undirokuðu. 15. september 2026 11:23