Grindavík lagði ÍR 19. desember 2008 21:16 Guðlaugur Eyjólfsson skoraði 20 stig fyrir Grindavík í kvöld sem er hans næstbesti árangur í vetur Mynd/BB
Nú er komið jólafrí í Iceland Express deildinni og mótið hálfnað eftir að 11. umferðinni lauk með þremur leikjum í kvöld. Grindavík situr sem fyrr í öðru sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir KR, en liðið lagði ÍR á heimavelli sínum í kvöld 92-78. Grindvíkingar töpuðu því aðeins fyrir toppliði KR í fyrri umferð mótsins. Stórskyttan Guðlaugur Eyjólfsson var hetja Grindvíkinga í kvöld og skoraði 20 stig af bekknum, þar af sex þrista úr átta tilraunum. Páll Axel Vilbergsson skoraði 16 stig, Brenton Birmingham skoraði 15 stig og hirti 8 fráköst, Páll Kristinsson skoraði 12 stig og hirti 9 fráköst og Arnar Freyr Jónsson skoraði 9 stig, gaf 12 stoðsendingar og hirti 7 fráköst. Hjá ÍR var Hreggviður Magnússon allt í öllu með 28 stig og 9 fráköst, Sveinbjörn Claessen skoraði 11 stig og Ómar Sævarsson var með 10 stig og 10 fráköst. Breiðablik hefur líklega verið spútniklið vetrarins til þessa og í kvöld vann liðið frækinn sigur á Tindastól fyrir norðan 83-79. Kristján Sigurðsson átti frábæran leik hjá Blikum og skoraði 32 stig og Nemanja Sovic skoraði 25 stig. Hjá Stólunum var Svavar Birgisson atkvæðamestur með 23 stig og 8 fráköst og Ísak Einarsson var með 11 stig, 9 stoðsendingar og 7 fráköst. Loks vann Keflavík auðveldan sigur á botnliði Skallagríms í Borgarnesi 97-52. Sigurður Þorsteinsson skoraði 24 stig fyrir Keflavík og Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 18 stig og hirti 11 fráköst. Landon Quick skoraði 17 stig og hirti 9 fráköst hjá heimamönnum og Igor Beljanski skoraði 13 stig. Staðan í deildinni þegar keppni er hálfnuð
Dominos-deild karla Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Fótbolti Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira