Hálf öld aðskilur nafnana 27. nóvember 2008 02:45 Bjarna og Ragnar Sólberg eru báðir að gefa út nýjar plötur fyrir þessi jól. fréttablaðið/gva
52 ár, eða rúmlega hálf öld, skilur að nafnana Ragnar Bjarnason og Ragnar Sólberg sem eru báðir að gefa út sólóplötur núna fyrir jólin. Plata Ragga Bjarna heitir Lögin sem aldrei mega gleymast og hefur að geyma þekkta slagara á borð við Manstu gamla daga, Fram í heiðanna ró og Viltu með mér vaka í nótt í skemmtilegum búningi. Gestasöngvarar eru Jónsi í Svörtum fötum, Ellen Kristjánsdóttir, Bjarni Ara og Kristjana Stefánsdóttir. Önnur sólóplata Ragnars Sólberg og sú fyrsta síðan hann var ellefu ára nefnist The Circle. Þar syngur hann lög um hringrás lífsins, lífið og dauðann. „Hún fjallar líka um það hvernig hringrás myndast á milli tveggja einstaklinga, um dauðann og ástina," segir hann. Enginn jafnoki RaggaÞrátt fyrir að rúmlega hálf öld skilji þessa tvo tónlistarmenn að og þeir séu að hittast í fyrsta sinn fer vel á með þeim. „Ég hlusta á hvað sem er sem kemur manni í gott skap," segir hinn ungi Ragnar spurður hvort hann fíli tónlist á borð við þá sem Raggi Bjarna ber á borð. „Ég hef verið mikið í Frank Sinatra undanfarið." Raggi eldri ljómar af ánægju þegar hann heyrir þetta en sjálfur hefur hann aldrei hlustað á Sign, rokksveit nafna síns. „Það er mikið komið af ungum strákum sem ég hef ekkert fylgst með," segir hann. En hvað ætli Ragnari Sólberg finnist um goðsögnina Ragga Bjarna?: „Mér finnst þú vera svalur. Það er æðislegt að þú skulir enn þá vera að gefa út plötur. Það er enginn sem gæti fyllt upp í þína skó," segir hann og þá svarar Raggi: „Röddin heldur og það er ekki eins og maður hafi verið með trefil alla sína tíð," segir hann og hlær, greinilega meðvitaður um að það er ekkert sjálfgefið að maður á hans aldri, 74 ára, geti enn þá sungið af fullum krafti. Bætir hann því við af hæversku að menn á borð við Björgvin Halldórsson geti vel fetað í hans fótspor í framtíðinni. Snarvitlaus fyrir 52 árumRaggi, hvernig varst þú fyrir 52 árum?: „Snarvitlaus," segir hann umsvifalaust. „Það var spennandi að vera í þessu. Þetta var miklu einfaldara og ekki svona mikið af öllu. Það var líka þessi spenningur að fara út að dansa og fara á ball. Þá var ekkert sjónvarp. Síðan vorum við með Sumargleðina í fimmtán ár og það var alltaf troðfullt." Ragnar Sólberg vonast til að standa í sporum nafna síns eftir 52 ár. „Ég ætla að vona að ég verði enn þá að gera tónlist, ef ég verð lifandi. Ætli ég búi ekki úti í sveit með fjölskyldunni og búi til tónlist." Stefna á samstarfRaggi Bjarna segist hafa áhuga á að starfa með sessunauti sínum í framtíðinni og öðrum tónlistarmönnum á hans aldri. Sér hann fyrir sér að syngja inn á plötu lög sem þeir hafi samið fyrir sig og útilokar til dæmis ekki að reyna fyrir sér í rappinu. „Þarna fengi ég að fara upp til þeirra. En þetta er svolítil vinna. Það þarf að koma gamlingjanum inn í þetta." Hann reynir hvað hann getur að hlusta á allt það nýjasta í tónlistinni. „Mér finnst gaman að þessu og ég veit alveg hvað er að ske. Ég er voða stoltur af þessu. Það hefur sprungið út svo mikið af ungu fólki sem eru ótrúlegar góðir hljóðfæraleikarar og „talentar". Þetta er það „legacy" sem ég vil sjá." freyr@frettabladid.is
Mest lesið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri Lífið „Samband okkar hefur alltaf verið flókið“ Lífið Ævintýrapar selur fallega fyrstu eign Lífið Sturla elti Tinder-ástina til paradísarstrandar í Mexíkó Lífið Eiginmaður Dolly Parton er látinn Lífið Hefndi kossins með kossi Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Stórmyndir í útrýmingarhættu Lífið Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár Lífið samstarf Fleiri fréttir Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira