Körfubolti

NBA í nótt: Enn tapar San Antonio

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dirk Nowitzky, leikmaður Dallas, skoraði 30 stig í leiknum í nótt.
Dirk Nowitzky, leikmaður Dallas, skoraði 30 stig í leiknum í nótt. Nordic Photos / Getty Images

San Antonio Spurs hefur tapað öllum sínum þremur leikjum til þessa í NBA-deildinni en í nótt tapaði liðið fyrir Dallas, 98-81, á heimavelli.

San Antonio tapaði fyrir LA Lakers í úrslitum Austurdeildarinnar í fyrra en þetta er í fyrsta sinn í 35 ár sem San Antonio tapar fyrstu þremur leikjum sínum á tímabilinu.

Dirk Nowitzky skoraði 30 stig fyrir Dallas í leiknum og Jason Terry bætti við 29 en þetta var í fyrsta sinn á tímabilinu sem hann var í byrjunarliði Dallas.

Tony Parker var með 22 stig fyrir San Antonio og Tim Duncan nítján. Manu Ginobili er enn frá vegna ökklameiðsla og er ekki væntanlegur aftur fyrr en í næsta mánuði.

Leikurinn var í raun aldrei spennandi. San Antonio náði að minnka muninn í þrjú stig í öðrum leikhluta en um miðjan þriðja leikhluta var munurinn orðinn 23 stig.

Phoenix vann stórsigur á New Jersey, 114-86, þar sem síðarnefnda liðið skoraði ekki nema níu stig í fjórða leikhluta. Leikmenn Phoenix hittu vel í leiknum og var skotnýting leiksins utan af velli 63 prósent. Raja Bell hitti úr öllum sex þriggja stiga skotum sínum og skoraði 22 stig fyrir Phoenix.

Steve Nash bætti við tólf stigum og ellefu stoðsendingum. Shaquille O'Neal var með átján stig og Amare Stoudemire fjórtán.

Hjá New Jersey var með nítján stig og Yi Jianlian fimmtán og átta fráköst.

Þá unnu meistarar Boston góðan sigur á Houston, 103-99. Þegar staðan var 101-97 var Tony Allen dæmdur brotlegur fyrir viðskipti sín við Tracy McGrady, leikmann Houston, sem var fyrir utan þriggja stiga línuna.

McGrady fékk þrjú vítaköst og nýtti tvö þeirra. Munurinn var því kominn í tvö stig en hann jókst aftur í fjögur þegar að Kevin House nýtti bæði sín vítaköst hinum megin á vellinum. Þá voru tæpar tíu sekúndur eftir.

Brent Barry misnotaði svo síðasta skot Houston í leiknum, Kevin Garnett náði frákastinu og þar með var leiknum lokið.

Ray Allen var með 29 stig fyrir Boston, Garnett fjórtán og ellefu fráköst. McGrady var með 26 stig fyrir Houston en þeir Ron Artest og Yao Ming náðu sér ekki á strik í leiknum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×