Handbolti

Ísland tekur efsta sætið ef Danir og Þjóðverjar gera jafntefli

Ólafur Stefánsson í leiknum við Egypta í nótt.
Ólafur Stefánsson í leiknum við Egypta í nótt.

Leikur Þýskalands og Danmerkur stendur nú yfir en þetta sem er síðasti leikurinn í B-riðli á Ólympíuleikunum í Peking. Ísland gerði jafntefli við Egypta í æsispennandi leik í nótt en geta þrátt fyrir það náð efsta sæti riðilsins. Til þess að svo verði þurfa Danir og Þjóðverjar að gera jafntefli.

Þetta varð ljóst eftir að Rússar völtuðu yfir Suður-Kóreu fyrr í dag 29:22.

Ef Þýskaland og Danmörk gera jafntefli þýðir það að Ísland, Kórea og Þýskaland eru öll með sex stig.

Íslendingar taka þá efsta sætið þar sem liðið er með + 3 í markatölu. Þýskaland tekur þá annað sætið með jafna markatölu og S-Kórea þriðja sætið með -3 í markatölu.

Ísland endar í þriðja sæti riðilsins ef Þýskaland vinnur leikinn. Við endum einnig í þriðja sæti ef Danir vinna. Danmörk er með þriggja marka forskot í hálfleik.










Tengdar fréttir

Ólafur: Við getum unnið alla

„Ég ætla ekki að hugsa um eitthvað sem hefði átt að vera. Þetta var bara akkúrat eins og það átti að vera. Nú þurfum við strax að byrja á að fókusa á það sem kemur eftir tvo daga en það er stórleikur,“ sagði Ólafur Stefánsson landsliðsfyrirliði.

Logi: Skrítinn leikur

„Maður verður að hafa þetta spennandi. Það var kannski jákvætt að ná jafntefli úr því sem komið var,“ sagði Logi Geirsson eftir jafnteflið gegn Egyptum í nótt.

Myndir úr Ísland - Egyptaland

Ísland og Egyptaland gerðu jafntefli í nótt en lokatölur urðu 32-32, rétt eins og í síðasta leik Íslands á Ólympíuleikunum í Peking, gegn Dönum. Vilhelm Gunnarsson tók þessar myndir í leiknum.

Ísland á enn möguleika á efsta sætinu

Ísland getur enn náð efsta sætinu í B-riðli handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Peking ef úrslit í öðrum leikjum verða liðinu hagstæð. Ísland á þó engan möguleika á að lenda í fjórða sæti riðilsins.

Hreiðar Levý: Ég er enginn hani

„Ég er nú enginn hani og það vita allir sem þekkja mig. Ég er ekki þessi morgunmaður,“ sagði markvörðurinn Hreiðar Guðmundsson léttur eftir Egyptaleikinn en leikurinn fór fram klukkan 9 um morgun að staðartíma og stemningin sérstök.

Jafntefli gegn Egyptum

Ísland má þakka fyrir að hafa náð einu stigi gegn Egyptum í lokaleik sínum í B-riðli handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Peking.

Snorri Steinn: Óli snillingur í að velja rétt

„Þetta var kannski ekki mér að þakka. Það var Óli sem gaf á mig en hann er snillingur í að velja rétt. Svo var bara að troða honum í markið,“ sagði Snorri Steinn sem var aftur hetja Íslands er hann jafnaði rétt fyrir leikslok. Að þessu sinni með marki af línu eftir sendingu Ólafs Stefánssonar.

Rússar rúlluðu yfir Kóreumenn

Rússar fóru létt með Suður Kóreu, 29-22, í lokaumferð B-riðils í handboltakeppni Ólympíuleikanna í Peking í nótt. Rússar höfðu yfirburði allan leikinn og leiddu í hálfleik, 17-12.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×