Hin 19 ára Kerstin Fritzl ætti að ná fullri heilsu samkvæmt lækni hennar. Hún er ein af börnunum sem Josef Fritzl átti með dóttur sinni Elisabeth sem hann hélt fanginni í kjallara sínum í 24 ár. Kerstin hefur verið meðvitundarlaus frá því veikindi hennar ljóstruðu upp um fangana í kjallaranum í apríl en hún vaknaði úr dái fyrir nokkrum dögum.
Sagt er að Kerstin hafi þegar tekið sín fyrstu skref eftir að hafa verið í dái. Hún hitti móður sína og hin systkinin öll á sunnudaginn en fjölskyldan hefur nú flutt inn í hús á sjúkrahúslóðinni þannig að þau geti lifað sem eðlilegustu lífi á sama tíma og Kerstin þarf að vera í læknisumsjá.
Að sögn læknis hennar getur hún bæði lesið og skrifað og á gott með að eiga samskipti við fólk þrátt fyrir að hafa lifað niður í kjallara allt sitt líf, alls átján ár.