Körfubolti

Houston byrjar vel

Ron Artest skoraði 29 stig og hirti 7 fráköst fyrir Houston í nótt
Ron Artest skoraði 29 stig og hirti 7 fráköst fyrir Houston í nótt NordicPhotos/GettyImages

Þrír leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Houston hafði betur gegn grönnum sínum Dallas 112-102.

Yao Ming átti góðan leik hjá Houston og skoraði 30 stig og hirti 13 fráköst, en Dirk Nowitzki skoraði 36 stig og hirti 11 fráköst fyrir Dallas. Houston hefur unnið fyrstu tvo leiki sína í deildinni.

New Orleans skellti Phoenix á útivelli 108-95. Mo Peterson skoraði 21 stig fyrir New Orleans, Chris Paul skoraði 20 stig, gaf 10 stoðsendingar og hirti 8 fráköst og Peja Stojakovic skoraði 20 stig. Mamare Stoudemire skoraði 21 stig og hirti 12 fráköst hjá Phoenix og Steve Nash var með 24 stig og 9 stoðsendingar.

Þá vann Cleveland sigur á Charlotte 96-79 í fyrsta leik Larry Brown í þjálfarastól Charlotte. Varamaðurinn Daniel Gibson skoraði 25 stig fyrir Cleveland og átti frábæran leik rétt eins og LeBron James sem skoraði 22 stig, hirti 9 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Jason Richardson var atkvæðamestur hjá Charlotte með 24 stig.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×