Körfubolti

Tveir úr leik vegna olnboga Dwight Howard

Dwight Howard er gæðablóð með fyrirferðarmikla olnboga
Dwight Howard er gæðablóð með fyrirferðarmikla olnboga AFP

Orlando verður án tveggja byrjunarliðsmanna þegar liðið sækir Philadelphia heim í sjötta leik liðanna í úrslitakeppni NBA annað kvöld.

Aganefnd deildarinnar dæmdi miðherjann Dwight Howard í eins leiks bann í kvöld fyrir að gefa mótherja sínum Samuel Dalembert olnbogaskot í fimmta leik liðanna í gærkvöldi.

Þá er ljóst að nýliðinn Courtney Lee hjá Orlando getur heldur ekki spilað sjötta leikinn vegna meiðsla, því hann varð líka fyrir olnboga Howard félaga síns í leiknum og meiddist á auga.

Smelltu hér til að sjá atvikið og umfjöllun sem fylgdi í kjölfarið.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×