Fótbolti

Hallgrímur og Eyjólfur léku í tapi GAIS

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hallgrímur Jónasson í leik með Keflavík í fyrra.
Hallgrímur Jónasson í leik með Keflavík í fyrra. Mynd/Anton

GAIS tapaði í kvöld fyrir Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni, 1-0, á heimavelli.

Hallgrímur Jónasson og Eyjólfur Héðinsson voru báðir í byrjunarliði GAIS í kvöld. Hallgrímur lék allan leikinn en Eyjólfur var tekinn af velli á 80. mínútu.

Þetta var annar leikur Hallgríms í röð í byrjunarliði en hann hafði fyrir það ekki áður fengið tækifæri í byrjunarliði GAIS síðan hann kom til liðsins frá Keflavík fyrir núverandi tímabil.

GAIS er í tólfta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar en ein umferð er eftir af deildinni. GAIS er öruggt með sitt sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×