Körfubolti

Hrafn: Það er ekkert ómögulegt

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Hrafn Kristjánsson, þjálfari Þórs.
Hrafn Kristjánsson, þjálfari Þórs. Mynd/Anton
Hrafn Kristjánsson þjálfari Þórs var brúnaþungur í leikslok eftir 90-96 tap fyrir ÍR á heimvelli í kvöld, en brattur þó fyrir lokaleikinn gegn KR.

Þórsarar gætu verið fallnir í þeim leik, ef FSu og Tindastóll vinna sína leiki á morgun.

"Þessi leikur féll bara þeim megin sem hann féll. Þeir settu niður þrjú risastór þriggja stiga skot á síðustu 90 sekúndunum og eiga hrós skilið fyrir það. Við vorum hinsvegar í aðstöðu til að taka þennan leik allt til loka og ég er ánægður með hvernig við komum inn í þennan leik. Hins vegar eru ákveðnar áherslur hjá okkur varnarlega sem voru ekki að gera sig eins og við ætluðum okkur. Við hleyptum þeim því of mikið á skrið," sagði Hrafn við Vísi.is eftir leikinn.

Hann er brattur fyrir síðasta leikinn. "Tímabilið er ekki búið. Við förum ekkert að setja niður hausinn og hætta, það er enn þá einn leikur eftir. Ég hef alltaf fulla trú á þessum strákum. Það er ekkert ómögulegt."

Hrafn er á því að liðið sé of vel mannað til að falla um deild. Liðið hefur saknað Cedrics Isom gríðarlega, en hann var yfirburðarmaður í Þór áður en hann meiddist. Hrafn segir grátlegt að hann sé að ná sér um þetta leiti, en hann er nú kominn heim til Bandaríkjanna eftir að hafa handarbrotnað.

"Liðið er of vel mannað til að fara niður. Það er grátlegt að Þórsvélin er einum til tveimur vikum frá því að hlaupa á öllum sílindrum aftur frá því við vorum með þrjá sigra og þrjú töp. Þá var Cedric í fullu formi. Síðan þá hefur hún ekki gert það, en það er kannski lítilmannlegt að fela sig bak við það. Það eru líka fullt af leikjum sem við hefðum átt að gera betur í, þrátt fyrir að vera ekki með Cedric, sem við nýttum ekki. Þar stendur hnífurinn í kúnni," sagði Hrafn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×